Er plottið að koma í ljós

Það skildi þó ekki vera að plottið sé að koma í ljós og þetta sé hluti af samkrulli Breta og Kana sem felst í því að knésetja okkur og ná tangarhaldi á auðlindunum. Allir spyrja hvað hangi á spýtunni hjá Rússum ég spyr en hvað hékk á spýtunni hjá bandamönnum okkar. Var það kannski þetta

Áfram Ísland


mbl.is Fjárfestingarsjóður vill yfirtaka rekstur virkjana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Hilmarsson

Það er óþarfi að hafa áhyggjur af þessu "plotti"!  Sá fiskar sem rær og að eigin frumkvæði vildu þessir aðilar kynna Landsvirkjun sína starfsemi.  Að sjálfsögðu var tekið vel á móti þeim eins og öðrum gestum.  Með það fóru þeir til síns heima. 

 Sem betur fer stendur Landsvirkjun vel - fyrirtækið er starfrækt í  dollurum  svo að gengisfall krónunnar undanfarna mánuði hefur þar ekki áhrif.  Vissulega eru skuldirnar á alþjóðlegum mörkuðum miklar en 3/4 teknanna eru í erlendri mynt.  Handbært fé Landsvirkjunar og tekjur duga til að sjá fyrir öllum skuldbindingum fyrirtækisins út næsta ár a.m.k.

Þorsteinn Hilmarsson, 15.10.2008 kl. 20:17

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Og svoleiðis á það að vera áfram að mínu mati

Jón Aðalsteinn Jónsson, 15.10.2008 kl. 20:36

3 Smámynd: Villi Asgeirsson

Það gæti alveg verið að þetta snúist um auðlindir og orku.

Villi Asgeirsson, 15.10.2008 kl. 20:45

4 Smámynd: Tori

Ef útlendingar vilja eignast eitthvað hér er það vel eins lengi og þeir leggja ekki fram einhver dónatilboð samanber Hr. P. Green.

Í þessu sambandi var gaman að heyra samtal rússneska sendiherrans sem ítrekaði vináttusamband við Ísland. Vonandi verða einhver rússnesk fyrirtæki sem vilja fjárfesta á Íslandi.

Tori, 15.10.2008 kl. 20:49

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Væri gaman að sjá þig blogga meira um orkumál Þorsteinn. Ekki veitir af að upplýsa Ómar Ragnarsson, Landvernd og fl. sem vaða um allt með vafasamar fullyrðingar.

Gunnar Th. Gunnarsson, 15.10.2008 kl. 20:50

6 identicon

Voðalega er ég hræddur um að þessi bófaflokkur sem kallast Íslendingar eða eitthvað þannig, hafi bara hreint ekkert um það að segja lengur hvernig orkuauðlindum - eða öðrum auðlindum - þessa náskers verður ráðstafað. Það verður IMF í samstarfi við (aðra) lánardrottna sem ákveður það.

Bóbó (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 21:01

7 Smámynd: Villi Asgeirsson

Gunnar, reyndu að segja eitthvað af viti. Hvaða fullyrðingar áttu við? Svona skot útí loftið hitta aldrei neitt.

Villi Asgeirsson, 15.10.2008 kl. 21:10

8 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Kannski er ég taugaveiklaður Villi en já ég held að auðlindir gæti hafa átt einhvern þátt í þessu. Rússneski sendiherrann var góður hann var svona mannlegur. Samála Gunnari væri gaman að heyra meira um orkumál frá þeim sem til þekkja. Ef við í bófaflokknum sem þú kallar svo Bóbó fáum að ráða þá verður ekkert IMF hér eða allavega af mjög skornum skammti.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 15.10.2008 kl. 22:19

9 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Gunnar Th. Gunnarsson, 15.10.2008 kl. 23:09

10 Smámynd: Björn Heiðdal

Það eru nú bara 3ja flokks hórkallar sem stjórna Landsvirkjun núna.  Þessum hórköllum eins og t.d. Þorsteini Hilmarssyni virðist vera fyrirmunað að skilja að framtíð Íslands gengur ekki út á að virkja allt sem hægt er að virkja og selja síðan til lægstbjóðanda.   Ég heyrði einu sinni talsmann Landsvirkjunar halda því fram að innlendir orkukaupendur væru svo litlir að það tæki því ekki að virkja fyrir þá.  Það þyrftu að koma til stórir erlendir aðilar eins og t.d. álver.  Þetta er allt gott og blessað en lýsir ákveðnu frati á t.d. innlenda framleiðslu að það borgi sig ekki að selja íslenska orku fyrir kúk og smá kanil.  Ef ég fengi kw stundina á nokkra aura væru bara góðar líkur á að ég færi að rækta jarðaber allan ársins hring og selja á þrjátíu krónur stykkið í Bónus.

Íslensku hórkallarnir eru dæmi um landráðamenn ásamt svokölluðum bankaræningjum.  Allt þetta er síðan í boði stjórnvalda sem ættu að skammast sín fyrir lágkúruna og skammsýni.  X-D. 

Björn Heiðdal, 16.10.2008 kl. 02:03

11 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Svona málflutningur eins og í Birni Heiðdal er lýsandi dæmi um öfgasinnaðan umhverfisverndarsinna. Það er ekki tekið mark á svona dónum.

Gunnar Th. Gunnarsson, 16.10.2008 kl. 03:02

12 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Villi, þú hittir naglann á höfuðið. Þetta snýst nefninlega um auðlindir og orku eða öllu heldur orku-auðlindir, eins og öll alþjóðastjórnmál virðist vera að snúast upp í nú orðið. Þeir sem halda um stjórntaumana á þeim leikvelli gera sér vafalaust grein fyrir því að orku-auðlindir nútímans munu verða okur-auðlindir framtíðarinnar. Umhverfiskommar og slíkir sjá gjarnan bara tvær hliðar á þessu, önnur snýr að togstreitunni milli nýtingar og verndarsjónarmiða, og hin snýr að misskiptingu auðæfa. Þannig lætur það blindast og sér því ekki þriðju hliðina, þá sem hamfarakapítalistarnir eru að horfa á, þ.e.a.s. að aðgangur að orku á viðráðanlegu verði er ekki síður velferðarmál heldur en framfaramál. Því er spáð að olía í heiminum endist e.t.v. nokkra áratugi í viðbót, Hellisheiðarvirkjun mun duga 40-60 ár og Kárahnúkavirkjun 70-90 ár. Þegar orkulindirnar fara hver af annari að þorna upp á næstu áratugum, hverjir ætli það verði sem verða þá skildir eftir úti í kuldanum og myrkrinu?

Guðmundur Ásgeirsson, 16.10.2008 kl. 11:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband