Að axla ábyrgð

Ef að Reykjavíkurborg vill axla ábyrgð þá fer ég fram á það að það verði sett stofn sérdeild innan sorplöggunnar sem að hefur það verksvið að hlaupa um ganstéttir og þefa upp i hundaskít sem er að fara með borgina í hundana. Það hins vegar er ekki inn því að hundahald þykir fínt og svona svolítið elítulegt að mínu mati. Það má ekki trufla þó að við hinir borgarbúarnir  lendum í að stíga ofan í viðbjóðin  um alt. Það er regla frekar en undantekning þegar labbað er um bæinn að maður rekst á hálfbeygða hunda út um hvippinn og hvappinn að ganga örna sinna meðan að eigendurnir horfa blístrandi á hálofta ferðir millilandaflugvéla og þykjast ekkert sjá áður en þeir læðast í burtu og líta í hina áttina.

Nei fyrst vill ég sjá hundadrella löggu áður en að ég sé í afturendana á Stasi upp úr öskutunninni hjá mér.

Þetta er síðan ekkert annað en aukin skattheimta á okkur borgarana en það hefur Gnarrinn og hans hirð verið fljót að nema enda Samfylkingin afburða góður kennari í því hvernig á að jafna lifistandardinn hjá fólki með því að taka af sumum en því er nú sjaldnast dreyft til annrra.


mbl.is Sorplöggurnar aðeins „reyksprengja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Hvaða, hvaða, Jón Aðalsteinn.

Hingað til hef ég aðeins séð afturenda undirmálsfólksins, svokallaðs, standa upp úr minni ruslatunnu og hef ekkert á móti smá-afturenda-tilbreytingu.

Hefjum þetta upp á "aðeins hærra plan" eins og skáldið sagði og lát oss sjá örlítið göfugri afturenda í okkar verðugu ruslatunnum.

Kolbrún Hilmars, 26.6.2012 kl. 19:20

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Mér er svo sem sama hvaða hausar eru á kafi í minni tunnu en finnst að forgangsröðun gæti verið önnur og borgin gengið á undan sem fyrirmynd fyrir okkur borgarana. Það er síðan athyglisvert að það verður byrjað í úthverfunum og ef ég man rétt þá á ekki að blátunnuvæða 101 fyrr en í kringum 2015 finnst að það hefði átt að byrja þar. Ég vildi þó helst sjá meiri áherslu á öldrunarþjónustu barnamál og annað sem að skiptir venjulegt fólk meira máli það er þau okkar sem eru að hefja lífsbaráttuna og þau sem hafa lokið dagsverkinu finnst það skipta meira máli og lýsa því betur hvers konar borgarsamfélag við viljum hafa heldur en rannsóknarvinna á magni bylgjupappa í ruslatunnum. Eru svo ekki allir afturendar jafnir bæði undirmálsfólks og þeirra sem göfugir eru

Jón Aðalsteinn Jónsson, 26.6.2012 kl. 22:20

3 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Ruslaflokkur velur sitt sovet svið- skoða hvað almennur almúgamaður setur í rusl- eru það smokkar- er hægt að skattleggja það- eða hefur hann borðað nautaskjöt- hvar fekk hann peninga ???

Erla Magna Alexandersdóttir, 26.6.2012 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband