Segir ekkert.

Þessi frétt segir manni ekkert að mínu mati, það segir í henni

"Hann benti á að frá árinu 2010 hefði ríkisstofnunum fækkað um 30 og ráðuneytum úr 12 í 10. „Við höfum sett á fót nýjar stofnanir,“ sagði fjármálaráðherra og nefndi í því sambandi embætti sérstaks saksóknara og eignaumsýslu Seðlabanka Íslands og Fjármálaráðuneytisins"

En sparaðist eitthvað í krónum og aurum það er hvergi minnst á það af háttvirtum ráðherra Eg les úr fréttinni að í raun hafi stjórnsýslan ekkert sparað
Eða hvað þýðir á annan hátt eins og segir í málsgreininni hér að neðan 

„Auðvitað hefur þessi mikli samdráttur sem við höfum staðið fyrir haft mikil áhrif á rekstur ríkisins. En í raun hafa þessir atburðir á Íslandi haft áhrif á opinberan rekstur og vinnustaði á margvíslegan annan hátt"

Eða eftirfarandi
"Hann sagði að mætt hefði á opinberum rekstri á margan annan hátt en að taka á sig niðurskurð"

Mitt álit er að fréttin segi í raun á rósamáli Hipp Hip Húrrey okkur hefur tekist að vernda okkur sjálf og velta öllum byrðunum yfir á almúgann í landinu við erum hipp og kúúl Hipp Hipp húrrey

En þetta er mín skoðun og öllum frjálst að vera ósammála


mbl.is Engin húrrahróp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Eitthvað heyrði ég af þessu í einhverjum miðlinum um daginn.

Það varð að draga fram aukastaf svo að tölurnar litu betur út.

'I stjórn(leysis)sýslunni reyndist samdrátturinn 3,4%. Svona rétt um 10% af því hver hann varð á almennum launþega utan ríkiskerfisins.

Óskar Guðmundsson, 21.9.2011 kl. 16:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband