Gleðilega Þjóðhátið (mig dreymir líka)

Margir mér meiri menn eins og Martin Luter og nafni minn Jón forseti áttu sér draum, ég á mér líka draum þó smærri sé í sniðum og ég langtum ómerkilegri  maður en þeir samt á ég mér draum sem eins og þeim var farið langar til að rætist.

Ég á mér þann draum að hér á landi rísi upp nýtt afl. Afl sem er ekki hokið vegna fyrri tíma, afl sem að er reiðubúið að láta til sín taka við endurreisn landsins á forsendum lands og þjóðar en ekki  á þvinguðum forsendum annarra ríkja,fjármagns,vinahópa eða vogunarsjóða.
Ég á mér draum um að hér ríki réttlæti fyrir jafnt stóra sem smáa, þá sem minna eiga og þá sem betur standa að þeir sem rikja láti ekki undan þeirri freistingu að skara eld að sinni köku og þeirra sem þeim eru nánir heldur deili byrðunum og gjöfunum á réttlátan hátt meðal fólksins í landinu.

Ég á mér draum um að hér ríki virðing meðal stétta að menntamaðurinn geri sér ljóst að það eru hendur verkamannsins og iðnaðarmannsins sem að skapa verðmætin sem gera honum kleyft að stunda nám sitt og að verkamaðurinn og iðnaðarmaðurinn geri sér grein fyrir því að það er vinna og hugmyndir menntamannsins sem að oft á tíðum skapa ný tækifæri og sóknafæri fyrir þá og að þessir aðilar geri sér grein fyrir því þegar þeir mæta á vinnustaði sína ný þrifna og skínandi er það fyrir atbeina fólksins sem að við lágan kost tók til og þreif undan þeim skítin eftir að þeir voru farnir heim til fjölskyldna sinna kvöldið áður.

Ég á mér draum um að hér ríki stjórnvöld sem að láta ekki undan þrýstingi og kúgun erlendra ríkja sem ásælast auðlyndir okkar og land ekki okkur til hagsbóta heldur til að geta aukið hagnað sinn og flutt verðmætin út þeim og sínum til hagsbóta. Að hér ríki stjórnvöld sem að virða Íslenska menningarhefð og sögu án þess að gera lítið úr sögu og menningu annarra stjórnvöld sem eru fær um að leiða þjóðina  áfram í ölduróti þvi sem að nú ríkir í heiminum.

Mig dreymir um að þau hin sömu stjórnvöld séu reiðubúin til að finna og refsa þeim sem að keyrðu landið í þrot og gera allt sem þau geta til að endurheimta þau verðmæti sem að tekin voru ófrjálsri hendi í staðin fyrir að eiða tímanum í nefndir og undirnefndir þar sem að þeim sem þeim eru þóknanlegir er plantað á dágóðu kaupi þó að þeir séu á launaskrá annarstaðar. Að hér ríki stjórnvöld sem gera sér grein fyrir því að nú er tímin til að vera heima og slökkva þá elda sem að hér brenna og hefja endurreisnina en ekki tímin sem hægt er að eiða í veislusölum erlendis.

 Ég á mér draum um að hér rísi á ný þjóðfélag þar sem að við getum stolt bent á að gott sé að ala upp nýjar kynslóðir sem að geti leikið sér á túnum óg i görðum án hættu á að verða fyrir ofbeldi og geti notið þess frelsis sem að fylgir því að vera ungur því eitt er vist að árin færast nógu hratt yfir og gleði og frelsi æskunar er liðin tíð fyrr en nokkurn varir.

Mig dreymir um að hér ríki afl sem að virðir einstaklinginn og framtak hans en hefur um leið bein í nefinu til að setja þær leikreglur sem þarf í lífinu svo að frelsi eins verði ekki helsi annarra. Afl sem styður og eflir einstaklingsframtakið en eiðir ekki öllum sínum tíma í eftirlit með þegnum sínum . Afl sem að treystir þegnum sínum fyrir hinu daglega amstri en telur ekki sjálft sig best til þess fallið að deila og drottna og að öllum hlutum hins daglega lífs sé best komið undir vökulum augum yfirvaldsins.

Ég á mér draum sem að ég er viss um að margir landar mínir deila með mér en ég er orðin svartsýnn á að hann rætist við núverandi ástand. Þetta er einfaldur draumur um einfalt og sanngjarnt  þjóðfélag en sennilega frekar barnalegur draumur í þessum heimi þar sem að hið góða í okkur mannfólkinu virðist vera á hröðu undanhaldi fyrir því sem miður er í fari okkar. En eitt er ég þó að gera mér ljóst það er að þangað til að fólk sem deilir sama draumi gerir ekkert í því að láta drauminn rætast er ljóst að þetta verður aðeins draumur um nýtt afl í Íslensku þjóðlífi.

Ég geri mér líka grein fyrir því að að undir því stjórnarfari sem að nú ríkir verður þetta aldrei annað en draumur. Nafni minn hefur verið kallaður sómi Íslands sverð og skjöldur hvða margir sem að sátu á Austurvelli áðan geta með sjálfum sér sagt að þeir eigi hluta eða alla slíka nafnbót verðskuldaða. Svari hver fyrir sig

 En er ekki dagurinn í dag einmitt dagur til að láta sig dreyma á þennan hátt sjálfur afmælisdagur lyðveldisins.

Gleðilega hátíð landar mínir. 


mbl.is Draumur Jóns um stjórnarskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband