Ég ekki skilja alveg

„Séu svör skoðuð eftir lýðfræði svarenda má sjá nokkuð jöfn viðhorf til málefnisins milli hópa. Þó með þeim undantekningum að 60,7% svarenda yfir fimmtugu, 63,7% þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins og 64,4% þeirra sem búa við heimilistekjur á bilinu 400-599 þúsund krónur töldu mikla þörf fyrir ný framboð."

Mér leikur hugur á að vita hvað margir svarenda yfir fimmtugu bjuggu einnig út á landi og höfðu tekjur milli 400-599 þúsund, hvað margir þeirra sem bjuggu utan höfuðborgarsvæðisins voru yfir fimmtugu og höfðu tekjur milli 400-599 þúsund og síðan en ekki síst  hvað margir svarenda með tekjur á bilinu 400-599 þús og yfir fimmtugt bjuggu út á landi.

Fyrr en ég veit þetta get ég ekki gert mér almennilega grein fyrir niðurstöðunni.

Hvað er annars lýðfræði?


mbl.is 70% vilja ný framboð til Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband