Rétt forgangsröðun hjá stjórnvöldum

Þetta sýnir stjórnvöld í réttu ljósi og hvað skiptir þau mestu máli.
Það liggur meira á að panta stólana í Brussuborg heldur en að slá skjaldborgina um heimilin.

Óðum eru skartklæðin að hrynja af Norrænuvelferðarógnarstjórninni og brátt verður hún nakin eins og keisarinn.


mbl.is Búið að sækja um ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla J. Steingrímsdóttir

Mikið er ég sammála þér

Erla J. Steingrímsdóttir, 17.7.2009 kl. 15:03

2 Smámynd: Árni Björn Guðjónsson

Ihaldið er buið að stela öllu af þjóðinni.Eina leiðin er að komast í ESB og koma böndum á þetta lið Ihaldsins.

Árni Björn Guðjónsson, 17.7.2009 kl. 15:11

3 identicon

Jón Aðalsteinn. Þú áttar þig ekki á því að án ESB aðildar verður erfitt, jafnvel óhugsandi, að slá þessa svokölluðu skjaldborg um heimilin.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 17.7.2009 kl. 15:12

4 identicon

Á þetta að vera alvöru málflutningur?

Uppnefningar og þreittir frasar er hvorki þér né Íslandi til framdráttar.

Kári (IP-tala skráð) 17.7.2009 kl. 15:14

5 identicon

Þetta er bara umsókn-umræðan er eftir og allir kinnhestarnir sem íslensku fíflin eiga eftir að fá frá bandalaginu. Siðlausir stjórnmálamenn sem hafa byggt upp þjófabæli með fjárglæframönnum verða ekki teknir með vetlingtökum af ráðamönnum í ESB.

Og síðan verður gaman að vita hvernig íslendingar ætla að snúa sér út úr verðtrygginga-og vaxta okrinu, bara svona sem dæmi í allri vitleysuni sem hrjáir þetta þjóðfélag.

Það verður gaman að fylgjast með umræðunum,ef því verður ekki haldið leyndu, eins og öðru hjá þessari voluðu ríkisstjórn.

V. Jóhannsson (IP-tala skráð) 17.7.2009 kl. 15:38

6 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Gott að hera Erla að einhver er sammála manni.  Árni þetta um að íhaldið sé búið að stela öllu af þjóðinni er að verða ofnotað eru allir útrásarvíkingarnir Sjálfstæðismenn hverjir leiddu fjármálaeftirlitið? og svo framv.
Haukur heldurðu að reikningur á bilinu 700 000 000 000 til 1200 000 000 000 frá ESB þjóðunum hjálpi skjaldborginni Hollendingar og Bretar eru þegar búnir að tengja þessi tvö mál

Kári þetta er skrifað eftir samtal við Samfylkingar mann ef að þetta er eitthvað sem ekki er okkur til framdráttar hefðirðu örugglega haft gaman af því að heyra hvaða orð hann valdi.

V ég er sammála þér það verður gaman að sjá hvað kemur út úr þessum samningum þó held ég að það sé búið að semja all nokkb ak við tjöldin

Jón Aðalsteinn Jónsson, 17.7.2009 kl. 16:08

7 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Grunnlínan er sú að ég er þeirrar skoðunar að við eigum og getum lagað þá hluti sem hér eru að án  nokkurar utanaðkomandi afskipta og án þess að skríða undir pilsfald ESB. Ég vil ekki einangra okkur í ellibandalagi ESB með 500 000 000 mans meðan að heimurinn með 5 000 000 000 mans getur verið opin fyrir okkur. Það hefur tekið stjórnvöld mánuði að grípa til aðgerða til verndar þjóðinni en það tók 22 klst að ganga frá inngöngu beiðni. Það sýnir forgagnsröðunina vel er það ekki

Jón Aðalsteinn Jónsson, 17.7.2009 kl. 16:11

8 Smámynd: Sigurður Ingi Kjartansson

Haukur ertu þá að tala um svona skjadborg eins og Evrópusambandið hefur hjálpað Evrópusambandslandinu Letlandi að reisa???

Þó margt geti verið gott í Evrópusambandinu þá er ég hræddur um að við verðum sjálf að sjá um að reisa okkur upp úr skítnum ESB hjálpar engum við slíkt.

Sigurður Ingi Kjartansson, 17.7.2009 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband