Verðtrygging

Ef þetta er afleiðing gengis hvers vegna hækkar þá húsnæðisliður þetta er í raun dapurleg afleiðing þess glæpakerfis sem verðtryggingin er orðin hún fæðir sjálfan sig í endalausum vexti eins eldur. Hún kemur því til með að brenna þangað til hún hefur eitt öllu lífvænlegu hér á landi.
mbl.is Gengi krónunnar skýrir hækkun vísitölunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Ertu fyrst að fatta það núna? Þessi verðtrygging (eignaupptaka) hefur mér verið hugleikin frá 1990 eitthvað. Var að hugsa um að kæra þessa verðtrygginu lána til Mannréttindadómstóls á sínum tíma en þar sem ég er skuldari þá hafði ég ekki efni á því. Það sem mér finnst furðulegast er að fólk er fyrst núna að vakna upp úr dái "Verðtrygging hvað" Í 30 ár hefur verðtrygging lána verið við lýði. Fyrstu tvö árin voru launin verðtryggð líka. Síðan var verðtrygging launa afnumin en ekki verðtrygging lána. Svona verðtrygging er hvergi nema hér. Af hverju stóðum við ekki upp fyrir löngu síðan og  mótmæltum? Sjáfsagt af því að við höfum alltaf verið góðir leiguliðar Íslenska Ríkisins.

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 26.5.2009 kl. 12:52

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Nei bloggvina er búin að vita þetta lengi en nú er eiginlega komið nóg eins og Kiðhús sagði í ævintyrinu og jú við höfum verið góð en eru þeir tímar ekki að líða undir lok það er hægt að bíta deigt járn svo bíti

Jón Aðalsteinn Jónsson, 26.5.2009 kl. 13:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband