Þetta er ekki rétt

Ég er á móti kynjakvótum í hvaða átt sem að þeir virka. Þetta voru valdir hæfustu einstaklingarnir og þeir eiga að fá að njóta þessa stuðnings annað er skrumskræling á lýðræði. Nú er kvennabyltinginn farin að éta börnin sín


mbl.is Siv efst í SV-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Þetta tek ég ekki undir. Kynjakvótinn var settur til þess að uppræta mismunun í samfélaginu og bæta lakan hlut kvenna enda full þörf á eftir þetta karlaveldi sem hefur verið hér.

Hilmar Gunnlaugsson, 8.3.2009 kl. 18:53

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

:) við getum ekki alltaf verið sammála ég er á móti þessu vegna þess að það kemur í veg fyrir lýðræði eins og skeði núna mér gæti ekki verið meira sama hvort að það sitja 63 konur eða karla á alþingi eða í stjórnum ég vil að sá hæfasti verði ráðinn. En ég veit alveg af kunningja ráðningum og pólitískum ráðningum en það hefur ekkert með það að gera að það eigi að mismuna fólki eftir kynferði sem er jú ekki leyfilegt samkvæmt stjórnarskrá. Mig rekur minni til að Bandaríkjamenn hafi gert þetta gagnvart blökkumönnum og útkoman hafi ekki verið góð. Síðan í einkageiranum eiga fyrirtæki einfaldlega að ráða því hverja þau ráða til starfa. En jákvæð mismunun kemur til með að henta okkur körlum fyrr en varir því núna mennta sig mikið fleiri konur en karlar í þeim geirum sem að fólk fer úr í stjórnun svo að við munum innan mjög skamms tíma vera komnir i minnihluta. Hlakka til að sjá hvernig umræðan verður þá

Jón Aðalsteinn Jónsson, 8.3.2009 kl. 22:47

3 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Einn bloggvinur minn sagði að jafnréttið ætti að fara í báðar áttir, ég tek undir það. Ef hallar á karlmenn þá eiga þeir sinn rétt líka

Hilmar Gunnlaugsson, 8.3.2009 kl. 23:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband