Enn er mótmælt

Skora á skipuleggjendur mótmælana að reyna að sjá til þess að þau fari ekki út í öfgar. Bendi að öðru leiti á síðustu færslu mína.


mbl.is Útifundur á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Hvernig á að koma í veg fyrir að einhver einn eða tveir fari í Bónus, kaupi egg og éti þau ekki? Hver ber ábyrgð nema sá sem veldur?

Villi Asgeirsson, 29.11.2008 kl. 13:42

2 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Villi skoðaðu síðustu færslu Jóns. Fólk er ekki að mótmæla gegn réttum aðilum.

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 29.11.2008 kl. 13:58

3 identicon

Ég er sammála þér í sumu en ekki öllu sem þú nefni í fyrri bloggfærslu þinni. Ég er sammála því að eggjakast og aðrar óspektir eru ekki til sóma og þær rýra málstað hinna sem mótmæla friðsamlega. Bónusfáninn fannst mér þó ekki dæmi um slíkt heldur var það táknræn athöfn sem varð engum að meini og sóðaði ekki út.

Ég er hins vegar ósammála því að verið sé að mótmæla gegn röngum aðilum. Stjórnvöld í landinu þurfa traust og trúverðugleika. Mér finnst aðgerðir þeirra ekki hafa verið trúverðuglegar. Seðlabankastjóri hefur verið að taka þátt í pólitík og virðist vera yfirlýstur andstæðingur efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og ýmissa þátta endurreisnarinnar. Ríkisstjórnin og Seðlabankinn verða að ganga í takt, annars verður annað hvort að víkja.

Aðgerðir Seðlabankans síðan í vor hafa grafið undan trúverðugleika hans á alþjóðavísu. Peningastefna síðustu ára hefur beðið skipbrot. Það hefur margoft verið bent á aðra og betri kosti með því að fela fagaðilum stjórn bankans í stað hagsmunaaðila.

Hvað ríkisstjórnina varðar, þá er krafa mótmælenda sú að fullkomið gegnsæi sé viðhaft en það er frekar svo að upplýsingum sé haldið frá almenningi en hitt. Þó ég sé Samfylkingarmaður og hafi stutt ríkisstjórnina, þá má þetta pukur ekki lengur viðgangast. Ef ríkisstjórnin leggur ekki spilin á borðið, þá verður hún að víkja. Var það ekki það sem þú vildir, að spilin yrðu lögð á borðið? Er ríkisstjórnin að stuðla að því að það verði gert? Ekki nægjanlega vel, að mínu mati. Og hvað á að koma í staðinn, spyrð þú. Þverpólitísk stjórn, hvort sem um er að ræða þjóðstjórn eða utanþingsstjórn. Í það minnsta ættu aðrir fulltrúar almennings að fá aðkomu að slíkri stjórn.

Ég hvet þig til að fara niður á Austurvöll til að kanna aðstæður, því ég veit að þær hugmyndir sem þú hefur um "múgæsinginn" sem þar ríkir eru rangar. Ég þekki það af eigin raun.

Jóhann (IP-tala skráð) 29.11.2008 kl. 14:38

4 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Þakka komentin. Við erum samála um gegnsæið en mig dreymir ekki um að það náist með þeim vopnum sem að við höfum í dag til þess þurfum við mun öflugra fjórða vald svo eru reglur um trúnað það er margt brallað sem að ekki má fréttast og um sumt þarf að viðhafa trúnað þannig að spillingarlaust þjóðfélag er fjarlæg sýn en vonandi ekki draumsýn.
Margir vilja losa okkur við spillinguna með því að ganga í ESB ef ég man rétt þá hafa endurskoðendur neitað að skrifa undir reikninga þess batteris i fleiri ár.

Ég tel ekki að það sé neinn sérstakur múgæsingur niður á Austurvelli. En ekki er hægt að þræta fyrir þó að það sé reynt að síðustu orð Harðar Torfasonar um síðustu helgi voru hvatning til að fara upp á Hverfisgötu og það sem þar fór fram er að mínu mati múgæsing.
Við getum held ég verið sammála um það að í ansi mörgum ríkjum heims hefði ekki þurft að binda um sár mótmælenda sem hefðu brotið sér leið inn á lögreglustöð og að sjá mynd af einstaklingi á barnsaldri með grímu yfir andlitinu á milli mótmælenda og lögreglu sló mig vegna þess að öryggi einsaklinginsins var stefnt í voða og vegna þess að það sér engin athugavert við það að mótmælendur taki upp þennan sið.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 29.11.2008 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband