Framför eða sýndarmennska

Það fer allt eftir því hvernig rafmagnið á þessar bifreiðar verður framleitt sé það með olíu og kolum þá er ekki um neina umhverfisvernd að ræða sé það með gufuafli vatnsorku eða vindorku þá má tala um umhverfisvernd eða allavega minni losun á gróðurhúsaloftegundum Látum förgunarkostnað af rafgeymunum liggja milli hluta.
mbl.is 100 milljónir punda í rafmagnsbíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í Englandi er það mest kjarnorka! Minkar gróðurhúsalofttegundi já, en hvað kemur í staðinn.

Bjartur (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 21:48

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Sennilega betri heimur eða hvað við glóum í myrkri og verðum ófrjó það er það sem að margir umhverfissinnar vilja það er færra fólk.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 26.10.2008 kl. 22:04

3 identicon

Mér er drullusama hvort þetta sé umhverfisvænt eða ekki. Við þurfum ódýrari kost til þess að taka við af rándýru olíunni.

Það er um 10x ódýrara að reka rafmagnsbíl ef ég man rétt. Rafmagnið á hann kostar kannski einn eða tvo þúsundkalla á mánuði og svo er hann settur saman úr miklu færri hlutum á einfaldari hátt og því miklu minni rekstrarkostnaður.

 Það yrði auðvelt fyrir okkur á Íslandi að skipta út enda nóg af ódýru rafmagni. Ímyndaðu þér bara hversu mikið lífsgæði okkar myndu batna með því að skipta þessu út.

Geiri (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 22:10

4 identicon

Smíðum þá sjálf úr Íslensku áli. Við eigum nægt vinnuafl og hugvit. Marel, Össur ofl. hafa reynslu.

Jónas Bragi (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 22:30

5 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Frábær hugmynd Jónas við byggðum hér einusinni  bæði vélar og bíla kannski við ættum að gera það aftur.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 26.10.2008 kl. 22:33

6 identicon

Jón! orkunýttnin af rafmagnsbílum er á milli 60-80% á meðan að nýttning á bensín vélinni er á milli 10-15% eftir að gírkassinn, og öxullinn er búin að taka sitt. Þó að það væri svartasta kol sem notaðist við að búa til rafmagnið á bílana, væri það umhverfisvænna en bílarnir við notum í dag. Þar að auki færðu secondary health effects á því að rykagnir (smog) hverfur í borgunum. Það er miklu auðveldara að hreynsa kolarreykinn á einum stað, í staðin fyrir að hreynsa dísel og bensín reyk í borgunum.

Þessi rök hjá þér eru þau sömu og FUD-ararnir (Fear Uncertainty and Doubt) í bandaríkjunum nota þegar þeir eru að koma í veg fyrir þróun nýrra tækni.

Sammála að íslendingar ættu að fara inn á þessa braut í staðin fyrir vetnis vitleysuna. það er líka rangt í greininni að drægnin sé 70 km. Á nýu bílunum er hún 200-250km, sjá Mini-E.

/valdi

Valdi (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 11:02

7 identicon

Gerum þetta sjálf, tæknin er fyrir löngu til staðar, þessu hefur verið haldið niðri af hagsmunaaðilum, sjá t.d. http://www.teslamotors.com/ 

Við þurfum ekki sportbíla, stórir, þungir pallbílar, með fullan pall af batteríum eru svo sem í lagi til að byrja með, en við þurfum alvöru kost, ekkert Reva rugl.

Gullvagninn (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 12:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband