Viðurkenna orðin hlut.

Ég sé ekki betur í fljotu bragði en að hér sé bara verið að viðurkenna tapið og það varla nema hluta af því get ekki séð miklar leiðréttingar hér á ferð. Get ekki séð annað en stjórnin sé að slá sig til riddara á baki hins skulduga Íslendings enn og aftur. Ekki nema von að bankar og aðrar stofnanir vilji vera með og nota tapað fé í góðmennskupottinn.
mbl.is 60 þúsund heimili njóta góðs af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Einmitt.

Sigurjón Þórðarson, 3.12.2010 kl. 19:00

2 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Spurningin er:  Hvað kostar það bankana mikið að afskrifa sokkinn kostnað?

Svarið:  Ekkert.

Þar sem kostnaðurinn er sokkinn, þá er hann tapaður og þar sem ekki er hægt að tapa sömu krónunni tvisvar í bókhaldi, þá er viðbótarkostnaður bankanna við að afskrifa sokkna kostnaðinn 0 kr.

Marinó G. Njálsson, 3.12.2010 kl. 21:01

3 identicon

Ég beinlínis vorkenndi Sigmundi Davíð að þurfa sitja undir bullinu í Árna Páli í Kastljósinu í kvöld. Þó hann geti ekki gert að því hvaða fólk sitji á þingi þá var auðséð hvað honum leið illa að hlusta á útskýringar Árna Páls á því hversu vel væri boðið. Mikið hlýtur aumingja maðurinn að hafa skammast sín fyrir "kollega" sinn.  

assa (IP-tala skráð) 3.12.2010 kl. 21:04

4 identicon

Jóhanna er útbrunnin. Hún hefur ekkert að bjóða lengur. Hún sagði það sjálf! Það litla sem hún bauð var sem dropi í hafið og langt í frá að vera nóg. Nú þarf blessuð konan að viðurkenna vanhæfni sína og getuleysi til úrlausnar á skuldum heimilanna í landinu og biðjast lausnar. Hver getur fengið Jóhönnu til að taka hausinn upp úr jörðinni og horfast í augu við okkur?

assa (IP-tala skráð) 3.12.2010 kl. 21:14

5 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Þakka innlitinn Það er rétt Marinó ég sé ekki annað en þetta sé jólagjöf án kostnaðar fyrir kerfið þó má viðurkenna að það er til bóta að byrjað sé að viðurkenna það. Ég sá ekki Kastljós Assa en ég held að á nyju ári sé komin tími til að hjálpa fólki að lyfta höfðinu úr sandinum og fara að breyta þessu. Ég lofaði sjálfum mér börnum og barnabörnum að láta þetta ekki eyðileggja hátíð ljóssins fyrir mér en það koma áramót.
Ég er þó arfa vitlaus að láta þetta pirra mig því ég á ekki teljandi hagsmuna að gæta mér bara ofbýður ástandið og það sem ég vil kalla opinberun á þankagangi þjóðfélagsins þegar kemur að fé.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 3.12.2010 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband