Gaman væri að vita.

" Bifreiðin sinnti ekki stöðvunarmerkjum tollgæslunnar. Hún mun þó hafa óskað eftir aðstoð lögreglu en engin lögreglubifreið var til reiðu til að sinna kallinu."

"Tollverðir reyndu ítrekað að fá ökumanninn til þess að stöðva bifreiðina með merkjagjöf en án árangurs. Haft var samband við lögreglu sem kom strax á vettvang."

Kom lögreglan eða ekki áður en slysið varð og ef hún kom ekki má þá tollgæslan stunda eftirför í morgun umferðinni og ef hún má það ekki er hún þá ábyrgð fyrir slysum sem að´svoleiðis eftirför veldur ??

Spyr bara svona af fróðleiksfýsn


mbl.is Áfengi fannst í bifreiðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Úr tollalögum 88/2005

155. gr. Leit í förum og farartækjum.
Tollgæslu er heimilt að leita alls staðar í förum sem eru á tollsvæði ríkisins. Einnig er heimilt að leita í farartækjum sem eru á eða koma frá fermingar- og affermingarstöðum skipa og flugfara, svo og öðrum þeim stöðum þar sem ótollafgreiddar vörur eru eða hafa verið geymdar. Tollgæslu er enn fremur heimilt að leita í öllum farartækjum sem hún hefur rökstuddan grun um að flytji ólöglega innfluttar vörur.

158. gr. Húsleit í framhaldi af beinni eftirför.
Tollgæslu er heimilt að veita þeim mönnum eftirför sem skjóta sér undan eða grunaðir eru um að hafa skotið sér undan tolleftirliti með innfluttar vörur. Framkvæma má leit í húsum þegar um beina eftirför er að ræða og bið eftir úrskurði dómara veldur hættu á sakarspjöllum.

Arngrímur Eiríksson (IP-tala skráð) 28.9.2010 kl. 12:17

2 identicon

Hún er ekkert frekar ábyrg fyrir slysum sem verða í eftirförum frekar en lögreglan.

Arngrímur Eiríksson (IP-tala skráð) 28.9.2010 kl. 12:21

3 identicon

hun hefur ekki tilgreinaleg ljós til eftirfarar yfir hámarkshraða ! aðeins vinnuljós eða svo best ég viti

ragnar (IP-tala skráð) 28.9.2010 kl. 12:54

4 identicon

Ragnar: Þarf ljósabúnað til að keyra hraðar en hámarkshraða? er það? Sem sagt ef löggan\tollurinn hefur ekki ljósin má hún þá aldrei keyra hraðar en sem nemur hámarkshraða?

Hvað segja umferðarlög og lum um neyðar\forgangsakstur um akstur tollsins?

Hvað vitum við um þetta atvik annað en það sem fjölmiðlar fara jafnvel ranglega með?

Hallur (IP-tala skráð) 28.9.2010 kl. 13:21

5 identicon

nei það má hun ekki gera frekar en við hin !!! það þarf forgángsljós til að láta okkur hin vita af því !!! það er heldur engin neyð i að ná þessum mönnum . og það á heldur ekki að pressa á fólkið . það stofnar öðrum i hættu !!!

ragnar (IP-tala skráð) 28.9.2010 kl. 13:44

6 identicon

Tollgæslan hefur ekkert með blá forgangsljós að gera. Fyrir það fyrsta þá er þetta forgangsljós en ekki stöðvunarmerki, þó svo að þau séu notoð sem slík. Forgansljós hafa þann tilgang að stytta útkallstíma og flestum tilfellum til að bjarga mannlífum og verðmætum. Einnig til að afstýra hættu (öfugt við það sem þessir tollgæslumenn stuðluðu að). Í öðru lagi þá er tollgæslan löggæsla en á sínu sviði eingöngu. Hún hefur ekki lögregluvald fram yfir almennan borgara nema á afmörkuðum svæðum sbr.flugvelli og hafnarsvæði. Tollgæslumenn meiga ekki einu sinni fara framúr hámarkshraða. Jú, þeir meiga stunda eftirför en bara á sama hátt og ég og þú! Hinn almenni borgari hefur enga skyldu til að framfylgja skipunum tollvarða td. eins og í umferðinni. Til þess höfum við lögregluna! Í þriðja lagi eru sjúkra og lögreglumenn "þjálfaðir" í því að aka forgangsakstur svo langt sem það nær. Tollgæslan ekki! Nánast eingöngu er þeirra menntun á bóklega sviðinu. Í fjórða lagi, þá er lögreglan löngu búin að átta sig á (sem betur fer) að það borgar sig ekki að hanga í rassgatinu á þeim sem ætlar sér greinilega ekki að stoppa ökutæki sitt og eru það mörg ár síðan. Þeir hafa sína yfirstjórn eða vaktstöð sem tekur slíkar ákvarðanir og stendur og fellur með þeim td. eins og halda áfram, draga úr eða stöðva eftirför. Þetta eru staðreyndir en hér fyrir neðan er mínir eigin duttlungar.

Síðan er það mín persónulega reynsla að tollverðir eiga það til að ofmetnast og halda sig stærri en raunin er og vísa ég þá í valdsvið þeirra. Einnig er misgáfulegir menn þar eins og annarstaðar en af einhverjum ástæðum hef ég alltaf lent í óttalegum aulum í póstmiðstöðinni upp á höfða. Menn sem ekki hafa geta skilið þá pappíra sem þeir báðu um og eitt skiptið þurfti ég að prenta út 3var sinnum sama pappírinn áður en ég gat fengið draslið afgreitt. Tek fram að ég var að panta vörur af ebay. Og eigum við eitthvað að ræða tollstjórnina....Mannsæði er EKKI landbúnaðarvara og ætti ekki að vera í sama tollflokki einu sinni. Ipodinn minn sem ég pantaði að utan var flokkaður sem upptökutæki og þurfti ég að borga fullt vörugjald, toll og vask þess vegna. Það er ekki einu diktafónn í ipodnum. Einn má nefna það að ef ipod kostar 50$ og sendingargjaldið aðrir 50$ þá þarftu að borga fullt vörugjald, toll og vask af 100$. Sambærilegur mp3 spilari ber miklu lægri gjöld og sumir með upptökumöguleika. Eru engin takmörk fyrir heimskunni? Svo segja menn að láta þá fá blá ljós svo þeir geti keyrt eins og fávitar "löglega"?
Nei takk!!!!  Látum eingöngu þá sem skipta okkur máli á neyðarstundu, aka með forgangsljós s.s. lögreglu, sjúkralið, slökkvilið, björgunarsveitir og læknavaktina.

Afsakið langlokuna en maður bara verður að svara svona vitleysu sem er hent, af hugsunarleysi, út í loftið:Þ

Kveðja,
Haukur Þór

Haukur Þór (IP-tala skráð) 28.9.2010 kl. 14:49

7 identicon

...og 3. mgr. 167. gr. tollalaga nr. 88/2005:

Stjórnendum fara og farartækja er skylt að stöðva þau þegar tollvörður gefur um það merki.

Arngrímur Eiríksson (IP-tala skráð) 28.9.2010 kl. 21:01

8 identicon

Til fróðleiks: Upptalning á þeim sem heimild hafa til forgangsaksturs (blá ljós og sírenur)

Lögreglan

Slökkvilið

Sjúkrabifreiðar

Læknavaktin

Björgunarsveitir

Ökutæki sprengjusveitar Landhelgisgæslu

Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli

Svo eru tollgæslan í Reykjavík með rauð þríhyrningslaga blikkljós sem fest eru í sólhlífina, sömu gerðar og starfsmenn þyrluvaktar Landhelgisgæslunnar eru með í sínum einkabílum.

Arngrímur Eiríksson (IP-tala skráð) 29.9.2010 kl. 00:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband